by Þorsteinn Erlingsson (1858 - 1914)
Til stjörnunnar
Language: Icelandic (Íslenska)
Þú stjarna mín við skýja skaut, á skærum himinboga, svo hrein á þinni bláu braut þú brunar fram með loga, og þegar alt er orðið hljótt og alheims kyrð og friður, þá horfir þú um heiða nótt af himni þínum niður. Og nú er miðrar nætur stund, og nú er geimur hljóður, því lífið festi blíðan blund, sem barn við skautið móður, og unir þar við eilíft ljós í ástarsælum draumum, uns eygló sendir roðarós frá rauðum austurstraumum. Þú ert eina unun mín, er einn og hljóður vaki; hve sárt mun verða' að sakna þín að svörtu fjallabaki; en þótt þú bíðir nú í nótt á næturhimni köldum, þú verður hulin helst til fljótt af holum vesturöldum.
Text Authorship:
- by Þorsteinn Erlingsson (1858 - 1914) [author's text not yet checked against a primary source]
Musical settings (art songs, Lieder, mélodies, (etc.), choral pieces, and other vocal works set to this text), listed by composer (not necessarily exhaustive):
- by Sveinbjörn Sveinbjörnsson (1847 - 1927), "Til stjörnunnar" [TTBB chorus a cappella] [ sung text checked 1 time]
Researcher for this text: Emily Ezust [Administrator]
This text was added to the website: 2009-11-18
Line count: 24
Word count: 117